Heilög Gianna Beretta Molla
Heilög Gianna,
Biddu fyrir okkur!
María mey frá Guadalupe
María mey frá Guadalupe
Biddu fyrir okkur!

Um Lífsvernd

Félagið var stofnað í apríl 2004 í safnaðarheimili Maríukirkju í Breiðholti af nokkrum kaþólskum áhugamönnnum um lífsvernd. Það er von okkar sem stöndum að félaginu, að sem flestir verði 'Pro Life' og að þeir sem eru 'Pro Life', gangi í félagið og gerist virkir í þessari baráttu. Sú barátta er ekki endilega hávær, en eitthvað sem við getum gert á hverjum degi. Í fyrsta lagi að biðja lífsverndarbænarinnar daglega. Í öðru lagi að láta aðra vita að við séum 'Pro Life', til dæmis vinnufélaga okkar og vini. Spyrja þá hvort þeir hafi áhuga á að ganga í 'Pro Life' félag. Í þriðja lagi að koma á bænastundirnar og taka þátt í því sem félagið er að reyna að gera með félagsmönnum.

Lög félagsins

Hugsjón okkar

Við trúum að ófædd börn hafi ófrávíkjanlegan rétt til lífs frá getnaði og að alls engar kringumstæður réttlæti beina fóstureyðingu.
Það eru alls engar kringumstæður sem geta réttlætt fóstureyðingu. Lífið er heilagt, án undantekninga. Það er einfaldlega alltaf rangt að deyða ófædd börn, óháð aðstæðum móðurinnar. Við getum haft samúð með móðurinni ef aðstæður hennar eru ekki góðar, en verðum að reyna að leysa vanda hennar og jafnframt þyrma lífi barnsins sem er byrjað að vaxa og dafna. Líf hefst við getnað. Það er ekki á valdi neins að ákveða eftir aldri, stærð, þyngd eða neinu öðru, hvenær manneskja er manneskja. Við verðum að virða ófrávíkjanlegan rétt barnsins til lífs, frá getnaði.

Hvað gerum við?

  • Við berum lítil merki sem kallast “Dýrmætir Fætur” sem sýnir tvær iljar af barnsfótum.
  • Við biðjum bænar daglega fyrir stöðvun fóstureyðinga.
  • Við hittumst mánaðarlega í kirkju og biðjum saman, upphátt og í hljóði fyrir ófæddum börnum og stöðvun fóstureyðinga.
  • Við gerum það sem við getum til að vekja athygli á þessum málstað.

    "Dýrmætir Fætur" barmmerkið
    Barmmerkið er raunstærð og raunlögun fóta 10 vikna fósturs og er alþjóðlegt merki lífsverndarfólks. Það gefur góða hugmynd um hvernig ófædd börn líta út 10 vikna gömul. Þessi merki eru fáanleg hjá okkur. Þau er einnig hægt að panta beint frá framleiðanda þeirra: http://www.hh76.com

    Sjá myndir af merkjunum hér
    Meira um “Dýrmæta Fætur”

    “Dýrmætir Fætur”
    Bæn um stöðvun fóstureyðinga

    Himneski Faðir! Við biðjum fyrir þeim ófæddu börnum sem með fóstureyðingu er ætlað að láta líf sitt í þessari viku. Bjarga þeim frá dauða. Breyttu viðhorfum foreldranna og gefðu þeim nýja von, svo að ekki komi til þessa örvæntingarfulla verknaðar. Teldu hughvarf þeim sem framkvæma fóstureyðingar. Kenndu okkur hvernig bregðast skuli við þessum blóðsúthellingum meðal okkar. Þess biðjum við fyrir son þinn Jesú Krist. Amen.

    Fleiri bænir
    Litanía sem svar við fóstureyðingum

    Mánaðarleg bænastund
    Fyrsta mánudeg hvers mánaðar er bænastund fyrir ófæddum börnum í Maríukirkju við Raufarsel, sem er kaþólsk kirkja. Messa er lesin kl 18.30 og henni lýkur kl. 19.00. Þá hefst bænastund fyrir ófædd börn með útstillingu altarissakramentisins. Henni lýkur kl 20

    Hvað þú getur gert
    Ef þú ert sammála því að ófædd börn hafi ófrávíkjanlegan rétt til lífs frá getnaði og að alls engar kringumstæður réttlæti beina fóstureyðingu, þá máttu til með að gera eitthvað. Þú getur gert ýmislegt:

  • Skráð þig í Lífsvernd og hvatt aðra til að gera það líka.
  • Beðið daglega bænar Lífsverndar fyrir stöðvun fóstureyðinga.
  • Tekið þátt í mánaðarlegri bænastund fyrir ófæddum börnum í Maríukirkju, Reykjavík, og öðrum viðburðum sem Lífsvernd efnir til.
  • Borið barmmerkið “Dýrmæta fætur”
  • Haft límmiða í afturrúðu bíls þíns með lífsverndarskilaboðum. Við bjóðum upp á slíka límmiða með skilaboðunum “ættleiðing—ekki fóstureyðing”.
  • Gefið vinum þínum penna með lífsverndarskilaboðum. Við bjóðum upp á áletraða penna með skilaboðunum: “ættleiðing—ekki fóstureyðing”.
  • Sett litla límmiða utan á umslög sem þú sendir. Við bjóðum upp á slíka límmiða með mismunandi lífsverndarskilaboðum, á íslensku og ensku.
  • Haft lífsverndarskilaboð í undirskrift tölvupósta sem þú sendir.
  • Stofnað þína eigin lífsverndarheimasíðu. Til dæmis: Blogger.com eða Folk.is. Þegar þú hefur gert það væri vel þegið að þú myndir láta okkur vita.
  • Styrkt starfið fjárhagslega. Leggja má inn á bankareikning 0115-05-68392 Kennitala: 700404-3310 eða þú getur keypt 'Pro Life' vörur í leiðinni.
  • Fleiri hugmyndir
  • Kærleiksheimilið
    María Priscilla Zanoria (s: 897-5391) rekur, á eigin heimili, athvarf fyrir þungaðar konur í neyð og kallar það Kærleiksheimilið.

    Að gerast félagi í Lífsvernd
    Allir eru velkomnir í félagið, kaþólskir og aðrir, sem eru sammála stefnu félagsins, og sérstaklega þeirri grundvallarhugsjón að alls engar kringumstæður réttlæti beina fóstureyðingu. Þeir sem vilja gerast félagar í Lífsvernd eða fá barmmerkið "Dýrmætir Fætur" geta haft samband við Magnús Inga Sigmundsson í síma 586-1211, séra Denis O'Leary í síma 557-7420, eða fyllt út form hér.

  • Félagar fá sendar tilkynningar í tölvupósti um það sem er á döfinni.
  • Hver félagi sem bætist við styrkir félagið. Því fjölmennara sem félagið er, því öflugra er það og líklegra til árangurs.

  • Kynningarbæklingur um Lífsvernd
    Fleiri prentvæn pdf skjöl


    Lífsvernd
    Garðhúsum 30, 112 Reykjavík
    Kennitala: 700404-3310
    S: 586-1211
    Ábyrgðarmaður: Magnús Ingi Sigmundsson